Um skólann

Um skólann

Við leggjum áherslu á að nemendur séu virkir í eigin námi. Það gerum við t.d. með því að vinna með áhugasvið nemenda. Hver og einn nemandi lærir því á sínum forsendum og hefur mikið um nám sitt að segja.

Tónholt er ekki námskrárbundinn skóli.

Námskeiðin eru í 10 – 12 vikur en alltaf er hægt að fá styttri námskeið og einnig er í boði að kaupa staka tíma.

Þeir sem ekki komast á námskeið geta fengið kennslu í gegnum Skype, Zoom og Facetime.

Hafir þú áhuga á að skrá þig á námskeið í Tónholti getur þú sent tölvupóst á gitarar@gmail.com

Eigandi Tónholts er Þráinn Árni Baldvinsson.

Tónholt er á Facebook Tónholt er líka á Youtube en þar er hægt að skoða kennslumyndbönd fyrir byrjendur og lengra komna.

Kennarar og starfsfólk

Kennararnir okkar eru einvalalið með reynslu og nám að baki.
Þráinn Árni Baldvinsson
Gítar, bassi, ukulele, píanó og trommur.
Heiðar Ingi
Gítar Bassi Píanó Trommur Ukulele
Silva Þórðardóttir
Söngur.
Guðmundur Arnþór Hreinsson
Gítar, ukulele, bassi, píanó/hljómborð.
Haukur Þór Valdimarsson
Gítar, bassi, ukulele
Viktor Árni Veigarsson
Bassi, gítar, ukulele, píanó.
Leit